02október

Hundasýning um helgina :D

Jæja þá er komið að hundasýningu um helgina :D jeijjjjj..... ég er reyndar frekar stressuð fyrir hana En Lola, Stormur og Perla verða sýnd :) svo verður Emil líka sýndur (Gullmola Another MacDreamy)... Mig langar svo gífurlega að fá CACIB á mjónurnar mínar að ég leggst á bæn á hverju kvöldi hehehehe...
En undurbúningurinn er í fullum gangi, erum reyndar mest búnar að vera að æfa hvolpavitleysingana því þeir eru já eins og nafnið gefur til kynna algjörir vitleysingjar :P híhíhí

Ég er reyndar frekar pirr núna, er föst heima það er svo mikil hálka á heiðinni og snjór að ég er að reyna að bíða og sjá hvort það minnki ekki aðeins svo ég komist í bæinn... ég bara VERÐ að komast í bæinn :S finnst alveg glatað að missa úr tíma í skólanum....

En annars er voða kósý að liggja upp í rúmi með tölvuna og ostaköku mmmmmm... og ekki verra að sunna sif kisa er hérna hjá mér og malar út í hið óendalega ;) ekki viss að hundarnir séu eins sáttir með að það sé köttur í holunni í staðinn fyrir þá :p

En jæja svo er það annað... það styttist í afmælið mitt :O jebbs.... veit þið trúið því ekki að ég sé orðin svona gömul en já það er komið að því... 24 ár er í raun ekki neitt, er enþá soddan unglingur ;) híhíhí

En hvað er samt málið með þessa kreppu... eg er að verða geðveik... það er allt orðið svo fáránlega dýrt og launin manns duga orðið ekki fyrir neinu, á valla fyrir mat út mánuðinn... Bónus er bara orðið eins og Hagkaup var í verðflokki og mest spennandi kostur er að borða núðlur í öll mál... svo ég tala síðan ekki um bensínkostnaðinn :S dísess það er katagoría út af fyrir sig... Þannig að ég óska hér með eftir peningatréii ég skal lofa að veita því gott heimili og mikla ást og umhyggju!!!

adios
Guðrún
02. október 2009 klukkan 10:20
Guđrún Jónína
Almennt
Engin athugasemd
21september

Bloggedí blogg

Jæja er ekki kominn tími á smá blogg :D frekar langt síðan ég bloggaði síðast...

En annars gengur allt rosalega vel hjá mér... en það mætti segja að líf mitt sé gjörbreytt síðan ég bloggaði síðast og til hins betra ;)

Ég er byrjuð í kvikmyndaskólanum og það er alveg geggjað gaman :) ég er búin að gera fyrstu stuttmyndina mína en hún var 1 mínútu og það var ótrúlega gaman, ég var reyndar alveg fáránlega stressuð þegar ég var að frumsýna hana og man í raun ekkert hvað ég sagði.

Það mætti í raun segja að það er gaman að mæta í skólann á hverjum degi. tímarnir mjög spennandi.

En það styttist í sýningu og ég ætla að sýna Storm, Lolu og Perlu :) svo verður Emil sýndir líka... sem betur fer fæ ég mikla hjálp :) en Alma ætlar að sýna Storm og Emil :) hvolpalingarnir fara á námskeið hjá heimsendahundum.

en ég ætla að byrja smátt að blogga upp á nýtt ;) næsta blogg verður vonandi lengra hehehe....
21. september 2009 klukkan 10:34
Guđrún Jónína
Almennt
Engin athugasemd
04nóvember

Stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag

Fannst stjörnuspáin mín í dag afar áhugaverð og ákvað að setja hana hingað inn... og það fyndna er að hún stenst algjörlega og samt er þetta ekki svona almenn stjörnuspá eitthvað.... fannst það bara fyndið

Stjörnuspá
Vog: Þokukenndar hugsanir árla dags víkja fyrir skýrleika seinni partinn. Reyndu að verja tímanum til gönguferða og hollrar útivistar. Reyndu að skipta þér ekki að, þetta líður hjá.

Annars er ekkert að frétta frá Hveragerði, allir hressir og hundarnir bara góðir ;) tóm gleði og hamingja á mínum bæ

04. nóvember 2008 klukkan 12:38
Guđrún Jónína
1 athugasemd
20október

Svíţjóđaveikin á háu stigi

Ég er komin með svíþjóðaveikina á hátt stig núna Frown langar svo að flytja út og helst bara strax á næsta ári... Er búin að vera skoða skóla þarna úti og fann einn sem mig langar soldið í en hann er í Uppsölum og þvílíkt góð staðsetning... og svo má vera með hunda allstaðar þarna þannig að það er ekki vandamál og svo er bara svo margt í boði þarna sem er ekki hér og ég tala nú ekki um betra veður... ég HATA íslenska veðráttu....

En Zoey skvís er öll að koma til held ég bara, ég teygi á henni á hverju kvöldi til að lengja sinarnar en í augnablikinu þá hryefir hún sig eins og kanína með fótinn sem er alls ekki fallegt. En hún ætlar að ná sér ég er alveg viss um það, ég bara verð að trúa því....

annars er bara lítið að frétta, bara brjálað að gera í skólanum eins og venjulega en núna reyndar extra mikið. fullt af skilaverkefnum og 2 próf framundan sem ég er frekar mikið stressuð fyrir... en samt á ég svo erfitt með að halda einbeitinguna í augnablikinu og lærdómurinn fer því bara í eitthvað rugl og ég er alveg hevy lengi að læra eitthvað.... en þetta kemur allt með kalda vatninu...

ætla að hætta að tuða og kvarta í bili :p

en skemmtið ykkur vel ætla að láta eina mynd fylgja með síðan úr svíjaríki í sumar
kl

20. október 2008 klukkan 20:51
Guđrún Jónína
3 athugasemdir
13október

Ammó um helgina :)

Jæja þá er komið að svona smá "afmælis" bloggi fyrst kellingin varð 23 ára á laugardaginn ;) sem var bara ótrúelga mikið fun :)

ætla samt að byrja á að segja frá Zoey skvís en hún fór í aðgerð síðasta miðvikudag sem gekk bara vel en við vitum í raun ekkert fyrr en líður á hvort hún nái að jafna sig en það voru alveg rosalegir samgróningar hjá henni greyjinu en hún er alveg hrykalega sterk og öflug að ég hef engar áhyggjur af mömmubarninu ;)

En á föstudaginn síðasta þá ákvða ég að halda smá svona teiti ekki beint afmæli en samt til að halda upp á þennan fína aldur. En ég fór í bæinn með Siggu vinkonu og við sóttum Rannveigu og skelltum okkur til Rakelar ;) En þangað komu svo Mæja, Ágústa og Thelma. Var alveg geðveikt fjör á liðinu og mikið af myndum teknar (sem eru á myspacinu mínu) við létum eins og vitleysingar hehe


ÞAð eru í raun engin orð sem geta útskýrt þessa mynd hehehehe

en við skelltum okkur síðan í bæinn og trölluðum fram á morgun, eða kannski til 5 því ég þurfti að vinna daginn eftir :( jebb þið lásuð rétt... ég var vöknuð klukkan 8 um morguninn og keyrði í hveragerði og skellti mér í sturtu og svo út að labba með hundana og síðan í vinnuna og var að vinna til 22... var reyndar alveg ótrúlega hress til svona kl 20 en þá gjörsamlega slökknaði á mér... var alveg búin á því og fór beint að sofa þegar ég kom heim. en samt alveg ýkt sátt með föstudagskvöldið svo ég kvartaði ekki mikið, bara smá ;) hehehe

en vá hvað ég er orðin þreytt þá þessari umræðu um efnahagslífið. það er ekki rætt neitt annað neinsstaðar, þær ræða þetta í vinnuni, skólanum og á fm... langar helst að taka bara pásu í þessum umræðum enda alveg komin með meira en nóg... ég veit þetta eru mikilvægar umræður en vá á meðna það er ekki komin almnenileg lausn þá bara nenni ég ekki að spá í þessu í bili, verð bara að vinna meira með skólanum til að eiga fyrir bensíni og mat... en maður lætur sig nú hafa það á endanum....

en eigiði alveg frábæran dag dúllurnar mínar :)
adios

13. október 2008 klukkan 08:58
Guđrún Jónína
Almennt
5 athugasemdir
06október

Kuldabolinn kominn :p

Ég er bara ekkert frá því að kuldabolinn hafi náð að bíta mig í nefið í nótt, er orðin svo ferlega kvefuð að það er ekki eðlilegt er bara með nefrennsli og allan pakkann :( ætlaði að fara í skólann í morgun en ákvað að læra frekar bara heima og ná þessu ógéði úr mér en ég verð að fara vinna í dag hjá Ósk og taka svo næturvakt hjá Sambýlinu sem er ekki fun þegar maður er sovna .... en þetta reddast allt saman, nú tek ég bara bjartsýna íslendinginn á þetta hehehe

En á ég að segja ykkur fréttir??? það eru 5 dagar í afmælið mitt :) já ég er að verða gömul alveg 23 ára hehe en það fyndna er að ég er búin að segja við fólk í næstum ár að ég sé 23 ára þannig að í fyrsta sinn þá fæ ég að vera jafn gömul í 2 ár hehe ætla sko ekki eftir helgina að segja fólki að ég sé að verða 24 mér finnst það svo helvíti gamalt allavega klæðir sá aldur mig ekki vel í augnablikinu :p

Adios í bili þangað til ég hef eitthvað merkilegra að segja en nefrennsli og gamalmenni hehe



 

06. október 2008 klukkan 13:03
Guđrún Jónína
2 athugasemdir
05október

Bored :s

já mér leiðist alveg ferlega mikið í dag, er búin að vera vinna alla helgina sem er ekki búið að vera eitthvað til að hrópa húrra fyrir nema kannski þá bara tilhugsunin um næsta launaseðil því það er sko komin kreppa hjá mér Fýldur er alveg í sparnaðarkasti dauðans þessa dagana.. Það er bara alltof dýrt að keyra í skólann er alveg að eyða alltof mörgum þúsundköllum í bensín sem er bara alltof sorglegt...

En mig hlakkar samt soldið til næstu helgi ;) en þá á ég AFMÆLI :) JIBBY hehe en amma ætlar að gefa mér föt í afmælisgjöf og ég held mamma líkaSvalur þannig að ég get ekki beðið hehe Langar svo í flottar buxur og einhvern töff bol ;) eða jafnvel flottan kjól eða bara eitthvað hehe en ekki örvænta þó þið séuð ekki komnar með boðskort í afmælið því þetta árið þá held ég ekki upp á neitt afmæli Ullandi en það er reyndar ekki breyting frá því í fyrra eða síðustu ár hehe held aldrey upp á afmælið mitt af neinu viti...

ég er búin að liggja á netinu undafanra daga að horfa á youtube en það er svo geðveikt fyndinn búktalari þar sem heitir Jeff Dunham og ég er held ég búin að horfa á öll videóin bara nörd þess dagana hehe

En ég er buin a sjá að ég er alveg frekar busy allar næstu helgar fram í nóvember.... er að fara vinna næstu helgi, svo helgina á eftir þá er árshátið í vinnuni og svo vinna helgina þar á eftir en síðan fyrstu helgina í nóv er laugarvegsgangan :D og ég held að það verði alveg mega tjútt í gangi þá, skemmti mér allavega þvílíkt vel í fyrra ég og Sigga dönsuðum eins og mófó og sá snúningur veðrur sko endurtekinn núna ;) þannig að Sigga mín þú veist það að ég er búinn að leigja kroppinn þinn þá helgi til að dansa af sér allt vit hehehehe en ég ætla að enda betur núna heldur en í fyrra ;) og ENGIN staup Ullandi alveg búin að sjá að staupin eru ekki mínir bestu vinir þessa dagana hehe

en ég ætla að halda áfram að einhverfast á netinu og mana mig út í búð að kaupa mjólk en ég er svo hrykalega löt eitthvað að ég nenni ekki að hreyfa mig úr sófanum...

en þangað til næst Adios

dfdf
Særún tók af mér mynd þegar ég var að sýna ballett í stofuni hjá Rakel hehe
var í flotta glimmer laxarbleika kjólnum hennar Beggu hehe bara snilld
05. október 2008 klukkan 17:19
Guđrún Jónína
4 athugasemdir
02október

endalaus snjór

Alveg ótrúlegt hvað það þarf að sjóa á fáránlegum tímum....
Ég fór í vinuna í dag og ákvað að spara soldið enda alveg vel blönk þessa dagana og tók því fram hjólið og byrjaði að hjóla af stað... eftir hálfa leiðina fór ég að pæla í því afhverju það var svo erfitt að hjóla eitthvað þannig að ég fer af hjólinu og athuga dekkinn, var þá ekki afturdekkið svona skelfilega lint þannig að ég ákveð að labba bara með hjólið enda erfitt að hjóla á því svona.... alveg nett pirruð en hugsa að það er svo gott veður að það verður ekkert vandamál að hjóla heim... Svo þegar ég er að fara heim er þá ekki kominn þessi fíni (NOT) snjór og ég enda með að þurfa að hjóla heim en mjög hægt út af dekkinu í þvílíkri snjókommu.. varð öll í snjó og blaut í gegn þegar ég kom heim alveg endalaust gaman.. þetta kenndi mér samt eitt... að spara á RÉTTUM stöðum Ullandi

En vá hvað ég er að drepast úr leiðindum yfir þessari ritgerð sem ég ætti að vera að skila eftir klukkutíma en vegna snjókommu :( þá þarf ég að skila henni á morgun sem er sko alls ekkert cool...
lækka í einkunn og alles. en svona er þetta bara
geri hana bara flottari í staðinn ;) eða ekki hehehe

en pælið í einu ég var að blogga 2 daga í röð hehe Jibby þetta eru sko framför í lagi ;)

02. október 2008 klukkan 22:37
Guđrún Jónína
3 athugasemdir
01október

Glimmer party og hundasýning :)

Jæja held að það sé kominn smá tími á blogg :)

Síðasta helgi var bara held ég alltof skemmtileg :D Það var hundasýning hjá HRFÍ og ég sýndi Lolu spanjolu þar og gekk henni bara glimmrandi vel :) varð BOS og fékk CC og CACIB ;) þannig að hún er komin með 3 íslensk meistarastig. Náði ekki að horfa á grúbburnar í fyrsta skiftið en Stormur kallinn varð 2 í grúbbu sem var bara geggjað :)
 
Lola 2008



Svo dreif ég mig heim  enda spennan alveg í hámarki fyrir glimmer party aldarinnar ;) en ég við ætluðum að byrja heima hjá Rakel vinkonu. Rannveig skvís málaði mig alveg rosalega fínt um augun og ég fékk ótrúlega fínt glimmer hjá henni Emmu.  Skemmtum okkur alveg hrykalega vel hjá Rakel dönsuðum og drukkum og tókum fullt af myndum hehehe er búin að setja nokkrar á myspacið mitt svo þið verðið bara að tékka þar ;) En held að ég segi ekki meira frá þessu djammi ;) svona have to be there moment hehehe
jkl


En annars er ég byrjuð í skólanum og það gengur bara nokkuð vel :) Er búin að fara strax í eitt próf í Almennu sálfræðinni og svo er brálað heimanám þarf að klára ritgerð fyrir morgundaginn og svo skilaverkefni strax eftir helgi. alveg fáránlega mikið að lesa en maður lætur sig auðvitað hafa það kemst víst ekki upp með neitt annað hehe

En ég er búin að vera vinna einhverfustu vinnu í geymi upp á síðkastið en það er að telja bíla, jebb þið lásuð rétt. ég er að telja bíla í hafnarfirðinum á háanna tíma sem er alveg megastuð. Ég og Begga vinkona erum að skemmta okkur við þetta hehe var alveg þvílíkt neiðarlegt í gær þurftum að telja bíla á hringtorgi og vorum upp á hringtorginu. Það var ekkert smá sem fólk starði á okkur enda skildu ekkert hvað við værum að gera með að bakka upp á hringtorg hehe og eina sem það sá var að við vorum hlægjandi og að éta til skiftis.. sáu ekki teljarann, þetta var algjört bílabíó ;) er einmitt að fara telja í fyrramálið klukkan 7 í hafnafirði ;) mega pæja sko hehe

en ætla ekki að hafa þetta meira í bili :)
ADIOS

-Gullkorn gærdagsins -
"Hún var með svo dökkar rúður að ég sá hana í svarthvítu"
Ullandi




01. október 2008 klukkan 20:38
Guđrún Jónína
5 athugasemdir
26júlí

Hlaup hlaup og aftur hlaup

Hæja ég er orðin hlaup sjúk þá meina ég ekki nammið Svalur 
Ég er búin að hlaupa 20km í þessari viku ekkert smá stolt af mér :) er reyndar alveg dauðuppgefin eftir hevrt skifti en ég er að hlaupa ca 4,7 - 6,2 km i hvert skifti. ætla mér að geta farið um 10 km í enda ágúst í venjulegum hlaupatúr þar aðs egja ef ég endast svo lengi hehe hlaup er nefnilega leiðinlegasta íþrótt sem ég get stundað hehe en hún er góð að því leiti að ég get stundað þetta með hundunum mínum og að vonandi léttist maður eitthvað á þessu en til þess er leikurinn gerður ;)

svo syttist í sýninganámskeiðið hjá Marc og vá hvað veðrur gaman á því, ég ætla að mæta með Zoey og Lolu á það og reyna að læra eitthvað gagnlegt enda á soldið angt í land með verða góður sýnandi en ég vil geta verið nokkuð góð að sýna ;) 

en svo er djammið í kvöld ;) en ég og Bryndís vinkona ætlum að skella okkur aðeins út á lífið en Dönsk vinkona hennar er í heimsókn hún Fina og hún er alveg frábær stelpa kynntist henni aðeins þegar hún kom síðast á klakann. ætlum í Hvíta húsið á selfossi Svalur og ég efast stórlega að ég muni blogga um það hehe

Isabella er öll að koma til í húðini og hárin eru að vaxa á henni þannig að hún er ekki eins bleik og hún var en það var hræðilegt að sjá hana hún var svo bleik greyjið. 

en endielga commentið á síðuna mína ég er búin að lát amiklu fleiri fá lykilorðið en þá sem hafa commentað ;)

adiios
Guðrún 

26. júlí 2008 klukkan 14:06
Guđrún Jónína
4 athugasemdir

Ađalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Guđrún Jónína
  • Netfang: gullmolar@btnet.is